Varúð - Hér býr jötunn

80 „Marta, áttu leir? Viljið þið leira með mér?“ spyr Þór kátur. „NEI!“ svörum við Marta bæði í kór. Svo springum við öll úr hlátri. Við höfum fengið meira en nóg af leir í bili. Ég lít á Mörtu sem hlær dátt. Svo mæti ég augnaráði Hvæsa. Mér finnst sem ég sjái litlar eldingar í gulu augunum hans. Kattarglottið sendir hroll frá tám og upp í hnakka. Ég er enn með öran hjartslátt eftir ævintýri dagsins. Þegar við komum inn í anddyrið loka ég útihurðinni vandlega. Það er eins gott að kötturinn sleppi ekki aftur út.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=