Varúð - Hér býr jötunn

71 Straumurinn er harður og Þór rígheldur í hálsinn á mér. Hann er þó ekki vitund hræddur. „Vúúúú!“ hrópar hann aftur og aftur. „Vúúúhúúú!“ Sem betur fer skilur Þór ekki að við erum í stórhættu. Hann lætur bara eins og við séum í vatnsrennibraut. Hrópar upp yfir sig af spennu og kreistir mig fast. Eftir því sem leirinn blandast fljótinu hægist á straumnum. Smám saman verður pissið að seigfljótandi drullu. Það verður æ erfiðara að hreyfa sig. Loks nálgumst við opna sprunguna en það er erfitt að halda sér á floti. Þykkur leirinn togar okkur niður og minnir á kviksyndi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=