Varúð - Hér býr jötunn
44 HVER ERT ÞÚ? „EKKI ÉTA MIG!“ hrópa ég og stekk frá skrímslinu. Það starir á mig tómum augum og hallar höfðinu. Skrímslið mælir mig út, frá toppi til táar. Það sem ég geri næst kemur jafnvel sjálfummér á óvart. Ég rétti fram höndina, eins og til að bjóða skrímslinu að þefa af henni. Það virkar allavega á hunda. „Sssh … “ segi ég sefandi röddu. Skrímslið stígur nær mér með nasirnar þandar. Ég reyni að anda rólega, sýnast öruggur og óhræddur. Hundar finna víst lyktina af ótta, og skrímsli eflaust líka. „Ssh … “ segi ég aftur. Mér dauðbregður þegar skrímslið opnar kjaftinn. Hvassar tennurnar eru svo nálægt hendinni á mér. Allt of nálægt. Ég kippi hendinni til baka en þá reisir skrímslið sig við og hefur upp raust sína. „HVER ERT ÞÚ?“ rymur það hátt og frussar á mig í leiðinni.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=