Varúð - Hér býr jötunn
38 Ó ÞÆGILEGUR FELUSTAÐUR Hingað til hef ég látið Mörtu stjórna ferðinni. Nú þarf ég að treysta á sjálfan mig. Skoða staðreynd- irnar í stað þess að hlaupa í blindni á eftir Mörtu. Ég renni yfir nokkrar vísbendingar í huganum. 1. Ég sá Þór hoppa niður á eftir Hvæsa. Hann hleypur hratt og er mjög hrifinn af kettinum. Það eru því góðar líkur á að þeir séu einhvers staðar saman. 2. Við eltum snúðamylsnuna hingað inn. Slóðin endaði í þessu rými. Þór er enn þá hér inni eða búinn að borða snúðinn upp til agna. Nema einhver sé búinn að borða Þór … 3. Hvæsi og Þór eru báðir litlir. Þeir geta falið sig í holum og undir húsgögnum. Ég þarf að leita á stöðum þar sem ég myndi sjálfur ekki fela mig. 4. Hvæsi vill gjarnan troða sér ofan í kassa, inn í skápa, leggja sig í hægindastól og … undir teppi!
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=