Varúð - Hér býr jötunn

20 Ég vil ekki að trúa því að þetta sé að gerast í alvöru. Kannski er þetta bara draumur. En svo finn ég kuldann nísta inn að beini og veit að ég er glaðvakandi. „ÞÓR?!“ kalla ég aftur. Þegar ég ætla að stíga niður á næsta stein finn ég fast land undir fótum. Ég er kominn niður á botn. Hér er dimmt og rakt. Ég venst myrkrinu og get loks séð í kringummig. En ég sé hvorki Þór, Mörtu né Hvæsa. Maginn á mér herpist saman í stóran hnút.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=