Varúð - Hér býr jötunn

16 Hún hefur aldrei séð reiðiköstin hans áður. Það er ótrúlegt hversu mikil orka kemst fyrir í svo litlum líkama. Þór er bara þriggja ára en öskrar hærra en þungarokkari. Ég toga ermina fram yfir hægri hendina til að þurrka honum í framan. Tárin fossa án afláts niður á sprungið malbikið. „Marius … “ segir Marta lágt. „Hvað?“ spyr ég án þess að líta á hana. Þór er orðinn rauður í andlitinu af áreynslu. „Marius, sjáðu … jörðina.“ Það vottar fyrir ótta í rödd Mörtu. „Bíddu aðeins,“ svara ég og faðma Þór að mér. Hann andar hratt en hefur loks hætt að orga. Ég reisi mig við til að líta á Mörtu en hún er horfin. Þar sem hún stóð áðan er nú ekkert nema þykkur reykur. Hún hefur gufað upp!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=