Varúð - Hér býr jötunn

12 Óviti er mikilvægt orð sem krakkar læra þegar þeir eignast systkini. Þegar Þór byrjaði að skríða breytt- ist hann úr litlu krútti í hættulegan óvita. Hann príl- aði á öllu, nagaði legókubbana mína og togaði fast í hárið á mér. Á meðan ég reyni að útskýra orðið óviti fyrir Mörtu hangir Þór í hurðarhúninum. Hann býr til svo mikil læti að ég heyri varla eigin hugsanir. „KISA!“ hrópar Þór allt í einu. „Já, já, kisa,“ svara ég annars hugar. „Kisa úti!“ segir Þór og bendir út um galopnar dyrnar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=