Um víða veröld - Heimsálfur klb.

7 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Inngangur Áður en kennsla hefst Mikilvægt er að í allri vinnu hafi kennari að leiðarljósi að vinna með þá grunnþætti sem kveðið er á um í aðalnámskrá grunnskóla sem grunnþætti menntunar, læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun. • Læsi: Reynir á hefðbundinn lestur og ritun, auk þess stafrænt læsi, þ.e. nemendur þurfa að tileinka sér tölvu-og nettækni til efnissköpunar í mörgum verkefnum bókarinnar, miðlamennt þar sem ólíkir miðlar eru notaðir og miðlalæsi. • Sjálfbærni: Hugtakið vel útskýrt í byrjun bókarinnar og gerir þannig nemandann meðvitaðan um ábyrgð sína á samfélagið. Í gegnum alla bókina er að finna atriði sem tengjast hugtakinu sjálfbærni þannig að því eru gerð góð skil. • Lýðræði og mannréttindi: Nemendur þurfa að taka afstöðu til ýmissa mála í umræðuspurn- ingunum og hvetur það til gagnrýninnar hugsunar. Mannréttindamál eru tekin fyrir og samfélög skoðuð út frá lýðræði og mannréttindum. • Jafnrétti: Komið er inn á stöðu fólks í mismunandi samfélögum og nemendur þurfa að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra í hinum ólíku samfélögum. Námsefnið fellur vel að þessum þætti. • Heilbrigði og velferð: Hægt er að tengja þennan þátt við andlegt og félagslegt heilbrigði. En með því að láta nemandann fá verkefni við hæfi styrkir það sjálfsmynd hans og þar með al- menna vellíðan og einnig ýtir hópvinna og umræður undir félagslega færni nemandans og þar með félagslegt heilbrigði. Að þessu leyti fellur námsefnið að þessum þætti. Með umfjöllun í lesbók er einnig reynt að stuðla að heilbrigðum hugsunarhætti með velferð allra jarðarbúa í huga. • Sköpun: Nemandinn skapar nýja þekkingu með því að tengja það við þá þekkingu sem er fyrir með áreiti eins og fer fram í vinnu við verkefni í bókinni. Þetta á við um kortavinnu og einnig vinnu við hin ólíku viðfangsefni sem nemendur eiga að vinna með og miðla til annarra þar sem undirstaðan er gagnrýnin hugsun, lýðræðisleg vinnubrögð og fjölbreytt framsetning á verkefnum. Nánari upplýsingar um grunnþætti menntunar er að finna í Aðalnámskrá grunnskóla: Almennum hluta (2011) og ritröð um grunnþætti menntunar (Læsi, Lýðræði og mannréttindi, Jafnrétti, Heilbrigði og velferð, Sjálfbærni og Sköpun).

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=