Um víða veröld - Heimsálfur klb.

56 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Ítarefni Á sama stað og tíma og Spánverjar mættu með flota sinn við strendur Mexíkó, árið 1521, átti sköpunar- guð Azteka að snúa aftur til jarðarinnar og endurheimta ríki sitt, samkvæmt trú þeirra. Aztekar tóku því sérstaklega vel á móti Spánverjum með gulli og gersemum. Þessar móttökur ýttu undir græðgi Spán- verja og á mjög skömmum tíma náðu þeir að brjóta niður veldi Azteka og binda snögglega enda á langa og blómlega menningarhefð í Mexíkó. Verkefni 1. Hvaða frumbyggjaþjóðir er fjallað um í textanum? 2. Hvað var það sem stuðlaði að þróun samfélaga í Mið-Ameríku? 3. Hvenær voru Olmekar uppi og hvað stuðlaði að uppgangi þeirra? 4. Hvað einkenndi hverja þjóð fyrir sig? • Olmeka • Maya • Tolteka • Azteka 5. Í hvaða nútímaríkjum bjuggu þjóðirnar? 6. Af hverju áttu Evrópubúar svo auðvelt með að fóta sig í Mexíkó og hverjar voru afleiðingarnar? 7. Hver voru hlutskipti þeirra lægst settu og þeirra hæst settu í samfélögunum? 8. Gerðu tímaás sem sýnir blómaskeið hverrar þjóðar?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=