Um víða veröld - Heimsálfur klb.

29 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Suður-Ameríka Atvinnuhættir bls. 116–117 Rifja upp atvinnustigin fjögur; landbúnað, sjávarútveg, iðnað og þjónustu. Landbúnaður er stærsta atvinnugreinin í S-Ameríku. Má velta fyrir sér byggingu varðskips Íslendinga, Þórs, í Síle sem afhent var Íslendingum árið 2011. Verkefni bls. 121 Um að gera að nota kortin í bókinni og Kortabók handa grunnskólum . Í verkefni 24 þar sem nemendur eiga að finna vöruinnflutning frá einstaka löndum í S-Ameríku má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur sjálfa leita að útflutningi einstakra landa S-Ameríku. • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara. Brasilía bls. 122–125 Benda má á að Brasilía er vaxandi efnahagsveldi. En þrátt fyrir það er misskipting mikil í landinu, sbr. fjölda götubarna og rammagreinina um Stækkandi fátækrahverfi í stórborgum Brasilíu bls. 124. Fyrir þá nemendur sem hafa gaman af íþróttum má benda á heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu árið 2014 og ólympíuleikana í Ríó de Janeiro árið 2016. Forn menning í Perú og Bólivíu bls. 126–127 Benda má nemendum á bág kjör frumbyggjaþjóða S-Ameríku. Sem dæmi er fyrsti frumbygginn í þessum heimshluta sem komst til valda eftir landvinninga Kólumbusar seint á 15. öld forseti Bólivíu, Evo Morales sem kjörinn var fyrst árið 2006. Mikið er til af rituðum heimildum og upplýsingum á netinu varðandi Inka. Upplagt að hvetja nemendur til að velja sér frjálslestrarefni á bókasafni tengt kaflanum. Einnig er hægt að samþætta kaflann við íslenskukennsluna í skólanum þar sem nemendur skrifa ritgerðir um valið efni. Argentína bls. 128–129 Argentína er 8. landstærsta ríki heims. Þar er suðupottur menningaráhrifa enda Argentínumenn innflytjendaþjóð, sbr. rammagrein um Ítalska innflytjendur . Auk þess eru fjölmennir hópar innflytjenda frá löndum eins og Sýrlandi, Líbanon, Kína, Kóreu og Japan. Vinna má með örnefni í Argentínu á korti. Kort bls. 130 Á kortinu er að finna lönd og höfuðborgir. Vinna má á ýmsan veg með tölfræðiupplýsingarnar í töflunni fyrir neðan. Skrá t.d. í réttri röð fjölmennustu löndin, fámennustu löndin, þéttbýlustu löndin o.s.frv. Verkefni bls. 131 Um að gera að nota kortin í bókinni og Kortabók handa grunnskólum . Í verkefni 19 þar sem nemendur eiga að finna vöruinnflutning frá einstaka löndum í S-Ameríku má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur sjálfa leita að útflutningi einstakra landa í S-Ameríku . • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=