Um víða veröld - Heimsálfur klb.

27 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Norður-Ameríka Kort bls. 105 Á kortinu er að finna lönd og höfuðborgir. Það má vinna á ýmsan veg með tölfræðiupplýsingarnar í töflunni fyrir neðan. Skrá t.d. 10 fjölmennustu löndin, 10 fámennustu löndin, 10 þéttbýlustu löndin o.s.frv. Hvetja nemendur til að leita einnig tölfræðiupplýsinga annars staðar. Verkefni bls 106–107 Um að gera að nota kortin í bókinni og Kortabók handa grunnskólum . Í verkefni 17 þar sem nemendur vinna skipulag ferðaáætlunar má t.d. gera í ppt eða Publisher. Hægt er að skoða fyrirmyndir hjá ferðaskrifstofum en þá er líka rétt að krefjast vandaðrar ferðaáætlunar. Í verkefni 25 þar sem nemendur eiga að finna vöruinnflutning frá einstaka löndum í N-Ameríku má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur sjálfa leita að útflutningi einstakra landa í N-Ameríku. • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=