Um víða veröld - Heimsálfur klb.

26 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Norður-Ameríka Frumbyggjar Norður-Ameríku bls. 90–91 Hér er gott að leggja áherslu á mikinn fjölda ólíkra þjóða indíána í Ameríku áður en Evrópubúar streymdu þangað í kjölfar landafunda Kristófer Kólumbusar í lok 15. aldar. Einnig er upplagt að fjalla um ferðir Íslendinga vestur um haf fyrir og eftir aldamótin 1900, ástæður vesturferða og fjölda vesturfara. Nota má kort af N-Ameríku til að rissa á og skrá byggðir indíánaættbálka og Vestur-Íslendinga. Leita má upplýsinga á netinu, t.d. á Vesturfarasetrinu á Hofsósi og/eða með því að slá inn t.d. natives, indians, america í leitarstreng. Verkefni bls. 92–93 Um að gera að nota kortin í bókinni og Kortabók handa grunnskólum . Til að leysa verkefni 22 er gott að leita upplýsinga á netinu. Þar má finna margar heimasíður með útbreiðslu indíána í Ameríku fyrir og eftir landafundina. Látið nemendur leita á netinu með því að slá inn t.d. natives, indians og america í leitarstreng. Til að leysa verkefni 24 er upplagt að leita upplýsinga á vef Icelandair. Til að leysa verkefni 26 þar sem nemendur eiga að finna vöruinnflutning frá Kanada og Bandaríkjunum má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur sjálfa leita að útflutningi frá Kanada og Bandaríkjunum. • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara. Bandaríkin bls. 94–97 Leggja má áherslu á að læra staðsetningu ríkjanna 50, teikna þau inn á kort af Bandaríkjunum. Úthluta jafnvel nemendum eða hópum fylki til að fjalla um og kynna. Leggja áherslu á hvaða áhrif Frelsisstríðið og Þrælastríðið höfðu á sögu Bandaríkjanna og út fyrir landsteinana, sbr. stjórnarskrá Bandaríkjanna 1776. Mið-Ameríka bls. 98–101 Þarf að tryggja að nemendur átti sig á því að Mið-Ameríka er hluti af N-Ameríku, sem oft vill gleymast í umræðunni. Geti nefnt löndin 7 sem tilheyra Mið-Ameríku. Rammagreinin um Rómönsku Ameríku verði lesin og borin saman við kortið á bls. 100. Gæti leitt til skemmtilegrar sögulegrar umræðu um afleiðingar landafundanna um og eftir aldamótin 1500, sjá einnig í því samhengi rammagreinina, Nýi heimurinn á bls. 106. Karíbahaf bls. 102–104 Nemendur eiga einnig að vita að Karíbahafið og eyjarnar þar eru líka hluti af N-Ameríku. Nemendur átti sig á Stóru- og Litlu-Antillaeyjum og hvaða eyjar tilheyri hvorri álfu. Upplagt að skoða með nemendum auglýsingar ferðaskrifstofa og varpa þeim upp á skjávarpa ef sá möguleiki er fyrir hendi. Þetta má gera með verkefnavinnu á bls. 107. Leggja má áherslu á stjórnmálasögu Kúbu þegar kaflinn er lesinn og ræða í kjölfarið viðskiptabann Bandaríkjanna, orsakir og afleiðingar þess. Ekki er úr vegi að nemendur velji sér frjálslestrarefni á bókasafni tengt kaflanum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=