Um víða veröld - Heimsálfur klb.

21 Asía Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Kína bls. 50–53 Leggja má áherslu á að Kína er land mikilla andstæðna. Hrjóstrugar hásléttur í vestri og frjósamar fljótasléttur í austri. Efnaminni bændur inn til landsins en ríkidæmi við sjávarsíðu Kyrrahafsins. Velta má fyrir sér hinni löngu samfelldu menningarsögu Kínverja og áhrifum hennar á vestræn samfélög. Undanfarin ár hefur hagvöxtur Kína verið einn sá mesti meðal þjóða heims, til hvers gæti það leitt? Fá nemendur til að skoða hvort og á hvaða fötum og hlutum þeir finni, Made in China . Þriggja gljúfra stíflan bls. 54–55 Upplagt er að gera stærðarsamanburð á Þriggja gljúfra stíflunni og íslenskum vatnsaflsvirkjunum. Í kaflanum má finna samanburð við Kárahnjúkavirkjun. Má láta nemendur skrá niður kosti og galla virkjunarinnar. • Kostir: t.d. bættari samgöngur langt inn í land og aukin og jafnari raforka til handa fleiri íbúum. • Gallar: t.d. íbúum gert að yfirgefa stór svæði, ræktarlönd tekin undir lónstæði o.s.fr. Einnig er mikilvægt að fá nemendur til að hugleiða umhverfisáhrif virkjunarinnar og þá í framhaldi umhverfisáhrif íslenskra vatnsaflsvirkjana. Kort bls. 56 Á kortinu er að finna lönd og höfuðborgir. Það má vinna á ýmsan veg með tölfræðiupplýsingarnr í töflunni fyrir neðan. Skrá t.d. 10 fjölmennustu löndin, 10 fámennustu löndin, 10 þéttbýlustu löndin o.s.fr. Verkefni bls. 57 Um að gera að nota kortin í bókinni og Kortabók handa grunnskólum. Í verkefni 18 þurfa nemendur að finna vöruinnflutning frá einstaka löndum í Asíu. Má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur sjálfa leita að útflutningi einstakra landa í Asíu. • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=