Um víða veröld - Heimsálfur klb.

20 Asía Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Ólíkur efnahagur og ódýrt vinnuafl bls. 42–43 Ólíkur efnahagur og misskipting auðæfa er mikil í Asíu. Vöruframleiðsla hefur að miklu leyti færst frá hinum vestrænu ríkjum til hins fátæka hluta Asíu þar sem framleiðslukostnaður er aðeins brot af því sem er á Vesturlöndum og munar þá mest um launakostnað. Mikilvægt að ræða þróun mála í þeim efnum og velta upp sanngirnissjónarmiðum í ljósi launamismununar og verkalýðsmála. Er þessi þróun í anda sjálfbærrar þróunar? Láta nemendur skoða frá hvaða löndum föt og hlutir sem þeir eiga koma. Hér mætti líka skoða þær fréttir og umræður sem hafa fylgt í kjölfarið vegna framleiðslu ýmissa merkjafyrir- tækja t.d. Nike, H&M, Primark o.fl. Atvinnuhættir bls. 44–45 Má benda á og ræða að landbúnaður er langalgengasta atvinnugreinin í Asíu. Iðnaður vex þó hröðum skrefum eins og fram kemur í kaflanum. Nemendur geri lista yfir fatnað og hluti og skrái hjá sér fram- leiðsluland. Verkefni bls. 46–47 Upplagt er að nota kortin í lesbók og Kortabók handa grunnskólum . Í mörgum verkefnum er við hæfi að ræða við nemendur samskipti á t.d. viðskiptalegum grunni og þau hugtök sem þeim tengjast, Fair Trade (sanngjörn viðskipti), barnaþrælkun, fátækt, lág laun o.fl. Í verkefni 21 væri hægt að gera ferðaáætlunina í Publisher eða PowerPoint. Hér mætti líka nota forritið Prezi.com sem er frítt forrit sem er góð tilbreyting frá PowerPoint, jafnvel iMovie fyrir þá sem eru með appletölvur eða ipad. Í verkefni 31 þurfa nemendur að finna vöruinnflutning frá einstaka löndum. Má benda á eftirfarandi slóð á vef Hagstofunnar. Upplagt er að láta nemendur leita að einstökum útflutningsvörum landa í Asíu . • Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara. Indlandsskagi bls. 48–49 Til að skilja sem best kaflann um Indlandsskaga getur verið gott að átta sig á afskiptum Breta og þá sérstaklega þegar skaginn var nýlenda Breta til ársins 1947. Indlandsskagi er eitt þéttbýlasta landsvæði í heimi, sjá töflu bls. 56, íbúar á ferkílómetra. Sérstaklega má benda á Gangesdalinn. Indland kemur mikið við sögu á monsúntímanum (bls. 41), gríðarleg úrkoma og mikil flóð svo oft hlýst tjón af. Tengsl eru talin vera á milli flóða og skógareyðingar. Þar sem ágangur á landið er sífellt meiri, skógar ruddir svo rótarkerfið bindur ekki lengur jarðveg, skolast hann burtu þegar úrhellisrigningar verða. Ræktarlönd bænda eyðileggjast einnig. Erfðastéttakerfi hindúa er raðað í tignarröð í fimm stéttir. Áður tengdust hóparnir tilteknum störfum og gera að einhverju leyti enn þó tilslakanir hafi verið miklar. • Brahmínar – var æðsta stéttin og hin göfugasta, færðu fórnir og voru nokkurs konar milligöngumenn milli manna og guða. • Kshatriyar – voru hermenn og valdsmenn sem stjórnuðu þjóðum. • Vaisyar – voru kaupmenn og iðnaðarmenn. • Sudrar – voru bændur. • Dalítar – voru hinir ósnertanlegu, utan allra stétta. Þeir unnu við„óhrein“ störf eins og götusópun.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=