Um víða veröld - Heimsálfur klb.

2 Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar Inngangur Til kennara Inngangur Kennslubókin Um víða veröld – Heimsálfur er bók einkum ætluð nemendum á unglingastigi. Bókin er byggð upp þannig að í henni eru átta kaflar sem eru einskonar ferðalag um heiminn. Fyrst er fjallað um tengsl manns og náttúru. Síðan er fjallað um hverja heimsálfu fyrir sig og í lokin um auðlindanýtingu mannsins í hafinu. Þar sem lesefni og verkefni er talsvert að umfangi er ekki ætlast til að efnið sé allt tekið fyrir, því hæglega er hægt að kenna námsefnið heilan vetur. Ef kennara sýnist svo er um að gera að velja efni sem taka á fyrir og gefa sér tíma í það, leyfa nemendum að sökkva sér í viðfangsefnin. Uppbygging bókar Hver kafli skiptist upp í nokkra mismunandi þætti: • Meginmál: Þar er fjallað um landfræðileg málefni, landslag, náttúru, náttúruauðlindir, atvinnu- hætti og einkenni hverrar heimsálfu. Fjallað er um ákveðin svæði eða lönd innan hverrar heims- álfu þar sem einkennum svæðisins er lýst. • Rammagreinar: Þar sem tekin eru fyrir málefni ýmist landfræðileg eða söguleg eða tengd frétt- um líðandi stundar. • Ítarkaflar: Heil opna þar sem fjallað er um afmarkað efni. • Hugtakaskýringar: Eru teknar fyrir og útskýrðar um leið og þær koma fyrir í efninu. • Kort og myndir : Fjöldi korta og mynda eru í bókinni sem bjóða upp á fjölbreytta vinnu. Fremst í hverjum álfukafla er gróðurkort með landamærum. Þá er auðveldlega hægt að átta sig á því gróðurfari sem er ríkjandi í hverju landi fyrir sig. Aftast í hverjum kafla er hins vegar pólitískt kort með höfuðborgum allra landa. Fyrir neðan eru tölfræðiupplýsingar sem hægt er að vinna með. • Verkefni: Í kennslubókinni er fjöldi fjölbreyttra verkefna sem kennari getur notað í vinnu með nemendahópnum í heild sinni eða í smærri hópum. Ekki er ætlast til að nemendur vinni öll verkefnin. Kennari getur t.d. valið ákveðin verkefni sem nemendur vinna og síðan leyft þeim að velja verkefni eftir áhuga. Verkefnin skiptast þannig: • Kortavinna: Hér er lögð áhersla á kortalæsi nemenda. Við verkefnavinnu þurfa nemendur að hafa aðgang að góðum kortum. Hægt er að nota kortin í bókinni en einnig er mikilvægt að kenna nemendum að nota önnur kort t.d. í Kortabók handa grunnskólum sem gefin var út 2012 eða önnur kort á netinu t.d. á google maps. Aftast í kennsluleiðbeiningum má finna kort af heims- álfum bæði einum og sér og líka heimskort sem kennarar geta ljósritað fyrir einstök verkefni. • Finndu svarið: Þar sem nemendur finna svarið í bókinni. • Umræður : Hér er unnið með umræðuefni sem hvetja til gagnrýninnar hugsunar: Nemendur eru hvattir til að skoða ýmis álitamál sem tengjast efninu og ætti kennari að hvetja til að málið sé litið gagnrýnum augum út frá ólíkum sjónarhornum. Nemendur læra að orða hugmyndir sínar og spyrji margvíslegra spurninga tengdum efninu. Samtímis fá þeir þjálfun í beitingu fjölbreyttra hugtaka og fá þannig tækifæri til að tileinka sér þau. Þannig fá nemendur tækifæri til þess að orða hugsun sína á skýran og skipulegan hátt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=