Um víða veröld - Heimsálfur klb.

13 Maður og náttúra Menntamálastofnun • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar • Í kaflanum er fjallað um: Hugtakið auðlind Sjálfbæra þróun Ríka/fátæka, ólíka lifnaðarhætti Landnýtingu Mannfjölda og mannréttindi Samfélög/þjóð/menningu/tungumál/trúarbrögð Í kaflanum er tekið fyrir samspil manns og náttúru og hvernig maðurinn nýtir auðlindir jarðar. Í upphafi er stutt umfjöllun um auðlindir og þá þrjá flokka sem henni er skipt í. Fjallað er um hugtakið sjálfbæra þróun en leitast var við að hugtakið væri leiðandi í allri umfjöllun í lesbókinni. Í kaflanum er fjallað um mannfjöldann, ríka og fátæka, dreifingu hans um jörðina og landnýtingu jarðarbúa. Hugtök eins og fæðingartíðni, dánartíðni, mannfjöldapíramídi, náttúruleg fólksfjölgun og fólksfækkun eru útskýrt. Hinar þrjár kynslóðir mannréttinda eru kynntar sem og þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í lok kaflans er fjallað um ólík samfélög, siði og venjur og því velt upp hvort nóg vatn og matur sé til handa öllum jarðarbúum. Einnig er hægt að nota sem kveikju mynd Davids Attenborough How many people can live on planet earth? Þetta er mjög umdeild mynd en getur verið góður grunnur að umræðum um efnið. Hvað er auðlind? bls. 5 Það er mikilvægt að nemendur fái góða tilfinningu fyrir hugtakinu auðlind og í hverju það felst. Hugtakið er mikið notað í allri bókinni og því mikilvægt að góð umræða eigi sér stað strax í upphafi þegar kaflinn er lesinn. Gott er að láta hugann storma með nemendum og skrifa á töfluna allar auðlindir sem þeim dettur í hug og skipta þeim jafnframt í þá þrjá flokka sem fjallað er um í kaflanum, láta nemendur glósa. Sjálfbær þróun bls. 5 Sömuleiðis er gott að taka hugtakið Sjálfbær þróun vel fyrir hér í upphafi. Fá góða tilfinningu fyrir þessu víðfeðma hugtaki sem mikið er notað í dag, í fjölmiðlum og daglegu tali. Gott er að fara vel yfir hvaða þættir í okkar daglega lífi eiga heima í hverjum flokki fyrir sig, samfélag, umhverfi og efnahagur , og hvað það er í okkar hversdagslífi sem leiðir til sjálfbærni . Heimsálfurnar bls. 6–8 Hér er að finna stórt og gott kort af heimsálfunum. Eins og gefur að skilja eru lifnaðarhættir fólks um alla jörð ólíkir eins og t.d. húsakynnin sem myndirnar á bls. 7 gefa til kynna. Nauðsynlegt er að benda nemendum á að til að skilja betur það sem er ólíkt t.d. okkar lifnaðarháttum þarf að þekkja þá þætti sem eru þess valdandi að lifnaðarhættir eru ólíkir. Má þar nefna loftslag, gróðurfar, sögu og margt fleira. Þetta þjálfar nemendur í að skilja og þá síður að dæma. Maður og náttúra

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=