Heil og sæl - Þemahefti um heilbrigði

OPNA 7. = Það er jafnmikil orka í einum hamborgara án kokteilsósu og 100 g skammti af sósu. Hvað kosta gosdrykkir þig mikið í peningum á ári? Ef þú kaupir tvær gosdósir á dag – hvað kostar það? Hvernig getur þú gert fæðuval þitt örlítið orkuminna, ef þú þarft þess á annað borð? Hvaða ákvarðanir gætir þú tekið strax í dag? Við fáum nauðsynleg vítamín úr fitu. Við þurfum fitusýrur til þess að mynda nýjar frumur. Kolvetni eru fljótlegasta orkuformið. Við þurfum lífsnauðsynlega næringarefnin í kolvetnaríkri fæðu. Prótein eru byggingarefni líkamans. Þau eru notuð í öllum efnaskiptum líkamans. = Eitt 60 g súkkulaðistykki jafngildir 1 banana, 1 epli, 1 appelsínu og 1 peru í orku.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=