Hauslausi húsvörðuinn

80 „Hana! Út með þig! Og ekki voga þér að stíga aftur hingað inn nema með nýlagað og rótsterkt kaffi!“ Amma hvæsti á Kristínu sem hrökklaðist aftur á bak út úr herberginu. Loks voru amma og Sólveig einar í herberginu. Rýmið virtist ekki jafn kuldalegt nú þegar gamla konan var komin. Jafnvel þótt þær væru báðar blautar og kaldar. „Svona, svona. Segðu mér hvað gerðist.“ Um leið byrjuðu tárin að renna. Sólveig vissi að amma myndi trúa henni. Ekki telja hana ruglaða eða ímyndunar- veika. Sólveig andaði djúpt og lét allt flakka.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=