Hauslausi húsvörðuinn

69 „En … þetta er svo asnalegt. Þú trúir mér aldrei.“ „Láttu á það reyna. Ég hef heyrt ýmislegt í mínu starfi. Séð ótrúlegustu hluti.“ „Eins og hvað?“ spurði Sólveig og slakaði aðeins á. „Bara … alls konar. Allt sem þér dettur í hug og meira til.“ „Ekki drauga.“ „Reyndar ekki. Og þó,“ sagði Kristín og hagræddi sér í stólnum. „Ég hef orðið vitni að dularfullum atburðum. Séð andlát sem ekki er hægt að útskýra. Fundið fyrir óþægilegri nærveru.“ „Þetta var meira en nærvera,“ sagði Sólveig og losaði hendurnar. Hún dró djúpt andann og lét vaða.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=