Hauslausi húsvörðuinn

68 Lögreglustöðin „Var það þá sem þú fannst almannavarna­ flautuna? spurði Kristín. Hún hallaði sér fram í sætinu og horfði stíft í augu Sólveigar. „Almannavarna hvað? Ég vissi ekkert hvað þetta var. Veit það ekki enn.“ „Hvernig komstu henni í gang?“ spurði Kristín Lind og virtist efins. „Ég man það ekki.“ Sólveig fann kökk myndast í hálsinum og kyngdi. Þetta var allt saman of ótrúlegt. Það myndi enginn trúa henni. „Þú getur treyst mér.“ Kristín hallaði sér yfir borðið og rétti Sólveigu opinn lófann. „Ég er ekkert smábarn, sko. Þú þarft ekki að halda í höndina á mér til að fá mig til að tala.“ Sólveig krosslagði hendurnar og hörfaði. „Talaðu þá,“ sagði Kristín Lind og krosslagði hendurnar líka, eins og til að ögra Sólveigu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=