Hauslausi húsvörðuinn

63 Ganga draugar með lykla? Nokkrum sinnum á ári kom hjúkrunar­ fræðingur í skólann til að bólusetja, vigta og spjalla við krakkana um öruggt kynlíf. Sólveig hafði aldrei séð hurðina að skrifstofunni standa opna. Ekki nema þegar hjúkkan var á staðnum. Óþægileg tilfinning læddist að henni. Það brakaði í dyrunum þegar Helga ýtti þeim hægt upp á gátt. „Bíddu,“ sagði Olga og kveikti á vasa- ljósinu á símanum. Hún lýsti yfir tómlegt herbergið. „Stelpur finnst ykkur ekkert skrítið að þessar dyr hafi verið opnar?“ sagði Sólveig og skimaði yfir hillurnar. „Skiptir það máli?“ spurði Olga og rótaði í djúpri skúffu. „Hvað ef draugurinn opnaði?“ spurði Helga skjálfandi röddu. Sólveig var fegin að þurfa ekki sjálf að spyrja þessarar

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=