Hauslausi húsvörðuinn

50 Teldu upp að þremur Sesar reif sig úr peysunni, vöðlaði henni saman og gerði sig líklegan til að þrýsta henni á sárið. „Bíddu, er … er í lagi að taka hnífinn út?“ spurði Jonni hikandi. „Ég skal hringja í 112,“ sagði Sólveig og dró símann upp úr vasanum. „Símarnir…“ sagði Helga og byrjaði að snökta. „Það er ekkert samband. Við komumst ekki út … stormurinn …. símarnir virka ekki.“ Olga tók utan um systur sína sem grét nú óstjórnlega. Sólveig starði niður á símann. Hún sló númerið inn í örvæntingu og reyndi að hringja en án árangurs. „Gúglaðu bara hvað við eigum að gera,“ sagði Sesar á meðan hann þurrkaði svita úr andliti Jonna.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=