Hauslausi húsvörðuinn

47 Þessi augu … Skyndilega missti Sólveig jafnvægið! Hún fálmaði út í loftið og greip í Sesar um leið og hún féll beint á Jonna. Öll þrjú hrundu niður tröppurnar og lentu í einni hrúgu. Sesar var fyrstur á fætur og rétti Sólveigu höndina. Hann togaði hana ringlaða upp. „Er allt í lagi með ykkur?“ spurði Olga sem stóð allt í einu fyrir framan þau. „Vó, þetta var rosalegt,“ sagði Helga og gapti. Þið hrunduð bara niður! Sólveigu létti að sjá að fótatakið hafði tilheyrt tvíburunum en ekki brjáluðum morðingja eða hauslausum húsverði. Hún leit niður á hönd sína enn læsta í lófa Sesars. „Sólveig …“ heyrðist í Jonna sem lá enn flatur á gólfinu. Sólveig svarað engu. Hún var allt of upptekin að hugsa um mjúkan lófa Sesars.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=