Hauslausi húsvörðuinn

41 „Ekki ég heldur,“ sagði Sólveig. „Ég get alveg farið þangað. Ég vildi bara ekki að litlu stelpunum liði illa.“ Helga horfði bænaraugum á Olgu sem stóð enn þétt upp við Sesar. „Olga, gerðu það, ekki láta svona. Komdu heim,“ bað hún og tók í hönd systur sinnar. „Oh, komdu þá.“ Olga þóttist vera pirruð en Sólveig sá hvernig hún andaði léttar. Þær gripu töskurnar sínar og stefndu í átt að dyrunum. Olga sneri sér við til að kveðja en Helga gat ekki beðið og kippti systur sinni út um dyrnar. „Þeirra missir, kannski finnum við beinagrind þarna uppi. Og pottþétt hauskúpu,“ sagði Sesar og hló.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=