Hauslausi húsvörðuinn

40 „Ég held þetta virki ekki þannig Sesar,“ sagði Sólveig og þvingaði fram bros. „Ókei, skiptir engu. Ég ætla upp á loft. Komiði með?“ spurði Sesar æstur við litlar undirtektir. „Æ, getum við plís komið heim,“ sagði Helga með grátstafinn í kverkunum. Tvíburasystir hennar hélt enn dauða- haldi í Sesar. „Ég held það sé best,“ tók Sólveig undir. Hún vildi ekki vera andartaki lengur í skólanum sem virtist nú töluvert óhugnanlegri en hálftíma fyrr. „Ég ætla að tékka á tröppunum,“ sagði Sesar ákveðinn og horfði á Jonna. „Kemurðu með? Eða ertu kannski hræddur?“ „Nei, ég er ekkert hræddur sko,“ svaraði Jonni og roðnaði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=