Hauslausi húsvörðuinn

33 „Ég gerði ekki neitt! Labbaði hann ekki bara í burtu?“ „Sesar í alvöru, varstu að spóla eða eitthvað?“ „Nei, ég sver það! Ég gerði ekki rassgat.“ Jonni spólaði hægt fram og til baka. Hópurinn sá hvernig skuggaveran stóð grafkyrr í nokkrar mínútur og hvarf svo jafn hratt og hún hafði birst. „Þetta er bara eitthvað hökt á spólunni, ekki láta svona barnalega,“ sagði Sólveig. Hún reyndi að spila sig harða en kulda- hrollur ferðaðist hægt upp eftir hryggjar- súlunni. Hvað ef þetta var í alvörunni draugur? „Ömm … krakkar! Hann er ekki horfinn,“ sagði Helga og færði sig enn nær sjónvarp- inu. Hún lyfti hendinni hægt upp og benti í átt að vinstra horninu. „Hann er þarna. Í tröppunum.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=