Hauslausi húsvörðuinn

31 Eðl i legasta útskýringin „Fjandinn sjálfur! Er hann kominn inn í skólann? Spólaðu til baka,“ sagði Sesar ákveðinn. „Maður segir viltu,“ muldraði Jonni í hálfum hljóðum og spólaði til baka um hálfa mínútu. „Hann birtist bara upp úr þurru“ sagði Helga svo tók við mesta gelgjukast sem Sólveig hafði upplifað. „Dísúss, hvað ef þetta er draugur, þú veist, fólk birtist ekki bara á miðju gólfi!“ Það ískraði í Helgu af æsingi. „Nákvæmlega! Og þetta gerðist á slaginu TÓLF á miðnætti. Ég brjálast!“ sagði Olga og var loks sammála systur sinni. Sólveig réð ekki við sig og ranghvolfdi augunum. „Þetta er bara spólan, þið sáuð alveg hvernig hún hökti í byrjun. Það vantar bara eitthvað inn í.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=