Hauslausi húsvörðuinn

28 „VÓ! Hvað var þetta?“ Helga færði sig alveg upp að skjánum. „Hvað?“ spurði Jonni hissa og ýtti á pásu. „Spólaðu til baka … sjáðu skuggann.“ Jonni gerði eins og hún bað og stoppaði þegar klukkan sýndi 23:58. Enn var matsalurinn algjörlega mannlaus. „Það er ekkert þarna. Þú varst bara að ímynda þér þetta,“ sagði Olga og sendi systur sinni harkalegt augnaráð. Sólveigu grunaði að Olga vildi bara halla sér þétt upp að Sesari og klára kvikmyndina. Helga neitaði þó að gefa sig. „Víst sá ég eitthvað. Beint fyrir utan gluggann. Þarna!“ Á skjánum mátti greina örlitla hreyfingu. Eins konar skugga sem þaut fram hjá glugganum. „Ókei Helga róleg. Það var bara einhver í göngutúr og labbaði fram hjá glugganum.“ Olga rúllaði augunum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=