Hauslausi húsvörðuinn

26 heitt augnaráð Sesars á bakinu á sér. Með öran hjartslátt leit hún við og augu þeirra mættust andartak. Sekúndubroti síðar voru augu þeirra allra límd við skjáinn. „Glötuð gæði,“ sagði Sesar. Hann hafði lagt frá sér tölvuna og sest fremst á dýnu- brúnina. Olga mjakaði sér framar til að missa hann ekki of langt frá sér. Athygli Sesars var hins vegar öll á sjónvarpinu. Svarthvít og kornótt myndin fraus og hökti í sífellu en fór loks að rúlla. Á skjánum sáu þau frá sviðinu yfir matsal skólans. Í einu horni myndarinnar blikkaði sama dagsetning og stóð á hulstrinu utan af spólunni. Þar var líka tímasetningin 23:35 sem mjakaðist áfram, mínútu fyrir mínútu. Matsalurinn var mannlaus en það var ekki skrítið á þessum tíma dags. Sólveig mundi ekki eftir að hafa séð eftirlitsmyndavélar inni í skólanum. Hún velti því fyrir sér hvaða

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=