Hauslausi húsvörðuinn

23 „Spes … “ Forvitni krakkanna var vakin og Jonni útskýrði hvað hann hafði fundið. „Æ, ég missti símann minn … þegar ég beygði mig fann ég þetta undir hillunni.“ Hann hélt uppi VHS-spólu merktri 19.09.1995. Á hliðina hafði verið skrifað með rauðum hástöfum: ATH! EKKI TAKA YFIR! „Er þetta ekki bara Friends?“ spurði Helga og stökk á fætur. „Díses Helga, veistu ekkert? Friends er ekki svona gamalt,“ sagði Olga sem sat nú enn nær Sesari. Það kæmist varla blað á milli þeirra. „Það er bara ein leið til að komast að því hvað þetta er.“ Jonni blés rykið af vídeótækinu og fálmaði eftir snúrum. „Kanntu eitthvað á þetta drasl?“ spurði Sesar efins. Loks kviknaði á sjónvarpinu

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=