Hauslausi húsvörðuinn

22 66% af stelpunum í unglingabekknum á eftir sér. Ágætis hlutfall, jafnvel þó þær væru bara þrjár í heildina. Síðast þegar Sólveig fór suður í heimsókn til Hönnu Stellu kom hún aftur heim með þrjá fulla poka af fötum. Í einum pokanum voru rándýrar gallabuxur og ónotaðir íþróttabolir. Neðst í pokanum var fallegasti brjóstahaldari sem Sólveig hafði augum litið. Úrvalið af brjóstahöldurum í kaupfélaginu var hreint út sagt glatað. Hún leit á Sesar. Hann gat ekki vitað að undir hettupeysunni var Sólveig í dökkrauðum blúnduhaldara með sjúklega heitum böndum í bakið. Miðað við hvernig hann starði á tölvuskjáinn hafði hann ekki minnstu hugmynd. Þriðja kvikmyndin var að byrja. Hugur Sólveigar hafði leitt þau Sesar inn á spennandi slóðir þegar Jonni muldraði eitthvað upp úr hálfum hljóðum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=