Hauslausi húsvörðuinn

19 Undir peysunni Fyrir stærri unglingahóp hefði dimmt herbergið myndað fullkomnar aðstæður fyrir daður og þreifingar. Slíkt var hins vegar frekar flókið í svona litlum bæ. Fyrir Sólveigu í raun bara í boði að vera skotin í einum strák. Jonni var frændi hennar, svo hún myndi ekki snerta hann með tíu metra löngu priki. Gaurinn sem vann í sjoppunni var reyndar sætur en hann var hundgamall. Alveg tuttugu og eitthvað! Þess vegna kom bara einn strákur til greina. Sesar. Sesar með súkkulaðibrúnt hárið, kaffibrúnu augun og karamellubrúnu húðina. Hann var eins og girnilegt eftir- réttahlaðborð. Á meðan bíómyndin hélt áfram í tölvu Sesars lét Sólveig hugann reika. Hún hafði stundum svekkt sig á því að vera ekki hrifin af stelpum. Þá hefði hún

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=