Hauslausi húsvörðuinn

11 Hvaða stormur? Enn var heil kennslustund eftir af skóla­ deginum þegar sími Tómasar pípti hátt. Hann leit á skjáinn og stökk fram á gang. Truflunin hafði engin áhrif á Jonna sem hélt áfram að leysa flóknar jöfnur. Olga og Helga hvísluðust á og litu aftur fyrir sig. Stífmáluð augu þeirra mættu þreytulegum augum Sólveigar. Hún lagðist aftur fram á borðið og dæsti. Skyndilega hljóp Tómas inn í stofuna og greip jakkann sinn af stólbakinu. Hann horfði móður og másandi yfir stofuna. „Stormur á leiðinni … Björgunarsveitin kölluð út. Ég þarf að þjóta. Þið lokið á eftir ykkur. Komið ykkur heim. Strax.“ Hann hafði varla sleppt orðinu þegar hurðin skelltist á eftir honum. Krakkarnir færðu sig að glugganum og horfðu á eftir honum stökkva upp í jeppa merktan björgunarsveitinni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=