Handbók í textíl

221 SNIÐ- OG SAUMALEIÐBEININGAR 3. Hettan RA RA Sauma: 1. Strauið smá búta af straulími á rönguna á þeim stöðum sem merkt er fyrir kósum/ hnappagötum. 2. Saumið lítil hnappagöt á merkta staði eða festið kósa í. 3. Nælið miðjusaum á hettustykkjum með réttur saman. 4. Saumið miðjusaum á hettu með litlu víxlpori og víxlsaumið saman saumför með stærra víxlspori. 5. Víxlsaumið framkant á hettu. 6. Brjótið að röngu 3 cm fald í framkanti hettu og nælið. Ef búið er að festa kósa (eða sauma hnappagöt) er snúran þrædd í gegnum kósana og látin liggja inn í faldbrotinu. 7. Beinsaumið fald rétt innan við víxlsaum. Hafið í huga að sauma ekki í kósana. RÉ

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=