Handbók í textíl

217 SNIÐ- OG SAUMALEIÐBEININGAR 5. Breiðið úr peysunni á borð með röngu upp. 6. Nælið ermar við handvegi með réttur saman. Látið merkingar fyrir axlir og framstykki á ermum standast á við merkingar í handvegum. 7. Saumið ermar í handvegi með litlu víxlspori og víxlsaumið saman saumför með stærra víxlspori. 8. Nælið erma- og hliðarsauma með réttur saman. 9. Saumið erma- og hliðarsauma á sama hátt og áður er lýst. 10. Mátið peysuna og athugið hvort sídd á ermum og bol sé hæfileg. RA RA RA RA RA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=