75 Á Íslandi eru margir jöklar. Vatnajökull er stærstur. Hann er meira að segja stærsti jökull Evrópu! Sumar eldstöðvar liggja undir jöklum og valda jökulhlaupi. Þá bræðir hitinn jökulinn og mikið vatnsmagn flæðir niður á láglendið. Hvannadalshnjúkur er hæsta fjallið okkar. Hann er 2.110 m hár. Í gamla daga fór fólk fótgangandi eða á hestum yfir hálendið. Í dag ferðast fólk frekar á láglendi umhverfis landið. Þar eru samt líka fjöll og heiðar. Þess vegna hafa verið gerð jarðgöng í gegnum nokkur fjöll sem erfitt er að komast yfir. 1. Hvað er Ísland stórt? 2. Hvað eru mörg eldstöðvakerfi á Íslandi? 3. Hvað heitir stærsti jökull Evrópu? NÝ ORÐ • vogskorið • virk • heiði ? Jökulhlaup eru öflug og geta tekið brýr og þjóðvegi í sundur. Hvannadalshnjúkur og aðrir jöklar eru mældir með hæðarlínum frá yfirborði sjávar.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=