73 1. Hvernig væri líf þitt ef þú hefðir fæðst sem þræll eða ambátt á víkingaöld? 2. Hvað myndir þú taka með ef þú værir að flytja til annars lands? 3. Hvað þarf fólk sem flytur á milli landa að læra um nýja staðinn? NÝ ORÐ • stéttaskipting • þrældómur • komast af Á víkingaöld mátti fólk kaupa annað fólk og eiga það. Fólkið sem var hneppt í þrældóm kallaðist þrælar og ambáttir. Það þurfti að hlýða og þjóna eigendum sínum. Bændur, vinnufólk og þrælar unnu saman í nýja landinu. Allir urðu að vinna mikið til að komast af. ? Víkingar rændu fólki og seldu það. Þrælar vissu ekki hver myndi kaupa þá eða hvert þeir myndu flytja. Já, en ég er Melkorka! Ég er írsk konungsdóttir!
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=