Halló heimur 1

14 Vetur Veturinn er kaldasta árstíðin. Stundum verður svo kalt að pollar, vötn, fossar og lækir frjósa . Það snjóar. Allir þurfa að klæða sig vel. Það getur verið hættulegt að fara illa klædd út í mikinn kulda. Sum húsdýr eru tekin inn í hús. Flest þeirra þola ekki kulda og vond veður. Það er gott að gefa smáfuglunum. Rjúpan skiptir um lit og fer í hvítan vetrarbúning .

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=