Halló heimur 1

varkárni: að fara varlega, gæta sín. vatnsdropi: samloðandi ögn af vatni. vaxa: stækka, verða stærra. veðurspá: spá um það hvernig veðrið verði næstu dagana. veðurtákn: tákn sem eru notuð í veðurspám til að lýsa veðri. vernda: passa upp á, hlífa. verpa: þegar fuglar losar egg úr líkamanum. vetrarbúningur: feldur og fjaðrir sumra dýra skipta um lit á veturna. vetrardvali: þegar dýr fer í hýði og hvílist yfir vetrartímann. viðbragðsaðili: þeir sem koma og aðstoða þegar slys eða óhapp verður. villt dýr: dýr sem lifa frjáls í náttúrunni. virða: að bera virðingu fyrir og fara eftir. virðing: gott álit sem maður sýnir öðrum eða ávinnur sér. vistspor: mælikvarði á neyslu, úrgang og mengun sem af þessu stafar. vættur: yfirnáttúruleg vera sem er ýmist góð eða vond. vöðvi: vefur í líkama sem er sérstaklega gerður til að hreyfa líkamann. þörf: að þurfa eitthvað, t.d. félagsskap, skjól, fæðu eða lyf. þjóðsaga: gömul saga sem gengur manna á milli. þríhöfða: að vera með þrjú höfuð á einum búk. þroskast: vaxa að fullu, verða fullgert eða tilbúið. örnefni: heiti eða sérnöfn ákveðinna staða, t.d. fjalla, fossa og dala. V Þ Ö 128 Hugtök

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=