skjól: vörn gegn kulda og veðri. skynfæri: líffæri sem gerir okkur kleift að skynja umhverfi okkar. smala: að safna saman eða reka búfé úr sumarhögum. smádýr: lítil dýr á landi, í vötnum og sjó. smáfugl: lítill fugl, oft notað um spörfugla (nema hrafninn). snerta: koma við. sólarhringur: 24 klukkutímar frá miðnætti til miðnættis. sólkerfi: sól, reikistjörnur og tunglin sem þeim fylgja. sólúr: teinn í miðri hringlaga skífu og varpar skugga sem færist eftir stöðu sólar. spegilmynd: mynd sem sést í spegli. speni: hluti af júgrinu þar sem mjólkin kemur út. stirt: eiga erfitt með hreyfingar. stía: afmarkað hólf þar sem dýr búa. stjúpsystkini: börn sem alast upp saman sem systkini en eiga ekki sömu foreldra. stórvaxið: að vera stórt. sundrandi: smá lífvera sem breytir leifum af plöntum og dýrum í jarðveg. svifdýr: afar smá dýr sem svífa mörg saman um í sjónum. sýklar: örverur sem valda sjúkdómum. sættast: að ná sáttum vegna vandamáls. tannskemmd: skemmd eða hola í tönn. tillitssemi: að taka tillit til annarra. trúarbrögð: trú á tiltekinn guð eða guði. umferðarmannvirki: byggingar og hlutir sem tengjast umferðinni. umheimur: veröldin umhverfis okkur. umhverfi: það sem er umhverfis og í nágrenni við okkur. umhyggja: að hugsa vel um aðra, fólk eða dýr. umlykja: að liggja utan um. ummerki: spor, þegar merki um umgang sjást. undirgöng: gangvegur t.d. undir umferðargötu. uppskera: matjurtir sem búið er að taka upp úr görðum. urða: að grafa sorp í jörðu. úthvíld: að hafa hvílt sig nóg. útlit: hvernig eitthvað lítur út. T U Ú 127
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=