Gott og gagnlegt 3
8 GOTT OG GAGNLEGT 7. BEKKUR Næringarefni í algengum matvælum Orkuefni Á Íslandi fáum við prótein aðallega úr dýraríkinu. Prótein er mjög mik ilvægur fæðuflokkur fyrir börn og unglinga sem eru að vaxa og þrosk ast, en ekki er ástæða til að ætla að á Íslandi þjáist fólk af próteinskorti. Prótein sem kemur úr jurtaríkinu er aðallega úr baunum og ertum, t.d. sojabaunum. Þeir sem eingöngu neita jurtafæðis þurfa að vera vel að sér í næringarfræði. Prótein er orkugjafi. Eitt g af próteini gefur okkur 4 he (kcal). fiski kjöti eggjum mjólkurvörum baunum og ertum korni Við fáum prótein t.d. úr: RDS próteins a.m.k. 10% af heildarorku Prótein Fita gefur okkur orku og lífsnauð synlegar fitusýrur. Auk þess fylgja fitunni vítamín s.s. A, D og E sem einungis leysast upp í fitu. Fullorðn ir ættu ekki að borða mikla fitu því hún getur verið hættuleg heilsunni í of miklu magni. Ung börn þurfa á fitu að halda og fyrstu 2–3 æviár in er ekki æskilegt að þau fái fitu skertar mjólkurvörur. Eitt g af fitu gefur okkur 9 he (kcal). olíu smjöri smjörlíki mjólkurvörum kjöti feitum fiski Við fáum fitu t.d. úr: Fita RDS fitu 30% af heildarorku
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=