Gott og gagnlegt 2

GOTT OG GAGNLEGT 6. BEKKUR – 27 Soðinn fiskur, soðnar kartöflur, grænmeti og smjör. Djúpsteiktur fiskur, franskar kartöflur, kokteilsósa og hrásalat með majónesi. Hvor máltíðin skyldi nú vera hollari og af hverju ? Hér eru dæmi um tvær mishollar fiskmáltíðir 2 1 / 2 dl hveiti 1 dl heilhveiti eða speltmjöl 3 / 4 dl sykur 1 / 2 tsk kardimommuduft 1 1 / 2 tsk lyftiduft 1 / 2 dl súkkulaðispænir (rúsínur, döðlur, hnetur) 0,9 dl matarolía 1 egg 3 / 4 –1 dl léttmjólk Aðferð 1. Kveikið á ofninum og stillið á 175 °C. 1. Mælið þurrefnin og blandið saman í skál. 2. Bætið súkkulaðispónum saman við. 3. Brjótið eggið í litla skál, (bolla) mælið mjólkina og setjið saman við eggið og sláið þetta saman með gaffli. 4. Hrærið eggjablönduna og olíuna saman við þurrefnin með sleif. 5. Mótið tebolludeigið með tveim matskeiðum og setjið á bökunarplötu með pappír. Úr þessari uppskrift fást um það bil 15 tebollur. Hafið gott bil á milli bollanna. Hafið þær eins fallegar í laginu og þið getið. 6. Bakið í 15 mínútur. Tebollur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=