Gott og gagnlegt 2

GOTT OG GAGNLEGT 6. BEKKUR – 23 Ýsa Fersk ýsa er bragðmildur fiskur. Fiskholdið er hvítt og magurt, en fremur þurrt og hættir til að losna í sundur þegar fiskurinn er matreiddur. Um helmingur fisksins er nýtanlegur til matar. Flestum þykir fersk línuýsa afbragðs matur. Fiskurinn er misjafn eftir árstíma og einna rýrastur á hrygningar- tímanum á vorin. Soðin ýsa var lengi algengust á borðum Íslendinga og steikt ýsa í raspi fylgdi fast á hæla hennar. Matreiða má ýsu á margan máta og hefur fjöl- breytni í matseldinni aukist á síðustu árum. Reykt ýsa er t.d. mikið sælgæti og hún er gjarnan soðin í mjólk, bökuð, grilluð eða steikt. Ýsuna má sjóða, gufusjóða, pönnusteikja, ofnbaka og djúpsteikja. Einnig er ýsa oft nætursöltuð eða hert, hún er líka hengd upp, látin síga og síðan soðin. 200 g reyktur fiskur 5 dl vatn Grænmetisjafningur 1 gulrót 75–100 g hvítkál 1 / 3 græn paprika 1 1 / 2 dl vatn 1 / 2 grænmetisteningur 1 dl mjólk 2 msk hveiti 1 msk olía 15–20 g rifinn ostur Aðferð 1. Skolið fiskinn og skerið í hæfileg stykki. 2. Mælið vatn í pott, látið suðuna koma upp. 3. Setjið fiskinn í sjóðandi vatnið, lækkið hitann. 4. Látið sjóða í 7–10 mín. Grænmetisjafningur 1. Þvoið og hreinsið grænmetið. 2. Skerið gulrótina og paprikuna í kubba, sneiðið hvítkálið. 3. Mælið vatnið í pott, bætið grænmetisteningnum út í. 4. Þegar sýður er gulrótin og hvítkálið sett í pottinn, soðið í 5 mín. 5. Rífið ostinn. 6. Takið grænmetið upp úr vatninu með gataspaða. 7. Hristið saman mjólk og hveiti, hellið út í grænmetissoðið, bætið olíunni, rifna ostinum og paprikunni út í. 8. Setjið grænmetið út í jafninginn, slökkvið undir pottinum, látið standa á hellunni smá stund. 9. Berið jafninginn fram í skál en fiskinn á fati. 10. Gott er að hafa með þessu hrökkbrauð og smjör. Reyktur fiskur með grænmetisjafningi

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=