Gott og gagnlegt 2

14 – GOTT OG GAGNLEGT 6. BEKKUR 1 1 / 2 dl heitt vatn 1 1 / 2 dl mjólk 3 tsk þurrger 1 / 2 tsk salt 1 / 2 tsk hunang 1 1 / 2 tsk oregano 1 / 2 dl matarolía 1 / 2 dl hveitiklíð 5 1 / 2 –6 1 / 2 dl hveiti Aðferð 1. Heitu vatni og mjólk blandað saman í skál. 2. Þurrgerið sett út í ásamt hunangi, hrært. 3. Öllu öðru bætt út í, en haldið eftir einum dl af hveiti. 4. Hrærið vel. Bætið afganginum af hveitinu út í ef þess þarf og hrærið deigið vel saman. 5. Stráið hveiti yfir skálina og látið hana bíða á volgum stað þar til deigið hefur lyft sér. Best er að það lyft sér um helming ef tími er til. 6. Takið deigið úr skálinni, setjið það á hveitistráð borð og hnoðið. 7. Mótið deigið í bollur og ef til vill alls konar króka, kringlur og hnúta. 8. Setjið smábrauðin á plötu, gott er að pensla þau með eggjablöndu eða mjólk. 9. Látið smábrauðin lyftast á plötunni í 15 mín. Kveikið á ofninum og stillið hann á 200 °C. Bakið brauðin í 12–15 mín, en lengur ef þau eru sett í kaldan ofninn. Smábrauð Efni í deigið 1 dl mjólk 1 dl heitt vatn 3 tsk þurrger 1 tsk sykur 1 / 2 tsk salt 1 egg 3 msk matarolía 6–6 1 / 2 dl hveiti + hveiti til að hnoða upp í Fylling 1–1 1 / 2 dl pítsusósa 50 g pepperóní, má sleppa nokkrar sneiðar af skinku, má sleppa 1 tsk pítsukrydd 2 dl rifinn ostur. Aðferð 1. Blandið saman heitu vatni og mjólk í skál. 2. Mælið gerið og stráið því í skálina. 3. Setjið sykur, salt, egg og matarolíu út í skálina. 4. Mælið hveitið og blandið því saman við. Hrærið vel þannig að deigið verði seigt. 5. Látið deigið lyfta sér á volgum stað ef tími er til, gott er að það lyfti sér um helming. 6. Takið til efnið í fyllinguna. Takið til ofnplötu og pappír. 7. Takið deigið úr skálinni, hnoðið það lítillega með hveiti og skiptið því í þrennt. Hnoðið þangað til deigið verður sprungulaust og festist ekki við borð eða hendur. 8. Fletjið deigið út í aflanga lengju, u.þ.b. 15 x 20 cm stóra. 9. Smyrjið deigið með pítsusósu. Stráið pítsukryddi, saxaðri skinku, söxuðu pepperóní og osti þar yfir. 10. Rúllið deiginu upp frá lengri hliðinni og skerið það niður í 2–3 cm bita. 11. Raðið snúðunum á bökunarplötu. Sárið á að snúa upp. Þrýstið létt með lófanum á hvern snúð. Nú getið þið valið um að láta snúðana lyftast á plötunni í 15 mín. og baka þá síðan í 12–15 mín. í 200 °C heitum ofni eða setja þá strax í kaldan ofn, stilla ofninn á 200 °C þá tekur baksturinn u.þ.b. 20 mínútur. Pítsusnúðar

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=