Gott og gagnlegt 1

Efni: 3 dl hveiti 1 / 2 dl heilhveiti 2 tsk lyftiduft 2 msk sykur 1 / 4 tsk salt 1 / 2 dl matarolía 2 egg 2 1 / 2 dl mjólk 1 tsk vanilludropar Aðferð: Allt sett í skál og hrært saman í kekkjalausan jafning. Bakað í vel heitu vöfflujárni. Vöfflur Fjallagrös Fjallagrös eru villijurtir sem vaxa víða um land og eru tínd síðla sumars og á haustin. Þau er hægt að sjóða í mjólk, bæta í slátur og brauð. Áður fyrr var matur oft drýgður með fjallagrösum þar sem nóg var af þeim og þeim blandað saman við mjöl, bætt í skyr og grauta. Fjallagrös eru næringarrík. 26 – Heimilisfræði 5. bekkur Aðferð: 1. Kveikið á ofninum og stillið á 50 °C. 2. Leggið fjallagrösin í bleyti í kalt vatn. 3. Blandið saman í skál vatni, mjólk, súrmjólk, þurrgeri, púðursykri, salti og olíu. 4. Takið fjallagrösin upp úr vatninu, kreistið yfir vaskin­ um og rífið eða klippið þau niður. Hrærið fjallagrösun­ um ásamt hveitiflögum og hluta af hveitinu saman við gerblönduna. 5. Hrærið afganginum af hveitinu saman við og sláið deigið í skálinni. Látið deigið hefast ef tími gefst. 6. Hnoðið deigið lauslega og skiptið því í tvennt. 7. Hnoðið og mótið deigið að vild, til dæmis má skipta því í tvennt og rúlla út í tvo sívalninga sem snúnir eru saman og settir á ofnplötu klædda bökunarpappír. Penslið með vatni eða mjólk og stráið hveitiflögum ofan á. 8. Bakið í 5–8 mínútur hækkið þá hitann í 200 °C og bakið áfram í 15–18 mínútur. Efni: 1 dl heitt vatn 1 dl mjólk 1 / 2 dl súrmjólk 2 1 / 2 tsk þurrger 1 / 2 tsk púðursykur 1 / 4 tsk salt 1 msk matarolía 1 1 / 2 dl hveitiflögur eða tröllahafrar 1–2 msk söxuð fjallagrös 4–5 dl hveiti Fjallabrauð

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=