Gott og gagnlegt 1

Heimilisfræði 5. bekkur – 25 Efni: 3 dl ab mjólk 3 dl heitt vatn 6 tsk þurrger 3 / 4 tsk salt 3 msk matarolía 3 dl hveitiklíð 10 1 / 2 dl hveiti Aðferð: 1. Kveikið á ofninum og stillið á 240 °C. 2. Blandið ab mjólk og heitu vatni saman í skál. 3. Setjið þurrger, salt, matarolíu, hveitiklíð og næstum allt hveitið í skálina og hrærið vel saman með sleif. 4. Hrærið því sem eftir er af hveitinu út í skálina. 5. Setjið dálítið af hveiti á borð og hvolfið úr skálinni á borðið. 6. Hnoðið deigið og skiptið því í 12–18 pítur. 7. Mótið pítubrauðin og setjið þau á ofnplötu með bökunarpappír á. Hafið gott bil á milli þeirra. 8. Breiðið stykki yfir píturnar og látið þær lyftast á hlýjum stað í 15 mínútur. 9. Áður en píturnar fara í ofninn eru þær klappaðar út, þannig að þær verði 8–10 cm í þvermál. 10. Bakið í um það bil 10–12 mínútur. Í bakaðar pítur má setja ýmsar fyllingar, nautahakk, kjúklingabita, skinku, margvíslegt grænmeti og fisk. Oft eru ýmsir góðir afgangar til á heimilunum og þá er upplagt að nýta þá í pítubrauð. Mánudagspítur 18 litlar eða 12 meðalstórar Efni: 1 / 2 laukur 1 msk matarolía 1 / 4 græn paprika 1 / 4 rauð paprika 100–150 g fiskur, ýsa, þorskur eða koli, roðdreginn og beinlaus Aðferð: 1. Hreinsið og skerið laukinn smátt. 2. Hreinsið og skerið paprikuna í mjóa strimla. 3. Skerið fiskinn í litla bita. 4. Blandið saman í skál: tómatsósu, vatni, basil, grænmetiskrafti og salti. 5. Hitið olíuna á pönnu og látið laukinn krauma við lágan hita þar til hann er glær (2–4 mínútur). 6. Hellið nú sósunni úr skálinni á pönnuna og hrærið í, látið suðuna koma upp. 7. Bætið fiskinum og paprikunni á pönnuna og látið krauma í 3–5 mínútur. 8. Tilvalið er að bera þennan rétt fram á pönnunni og hafa grænmetissalat og hrísgrjón eða kartöflur með. Fagur fiskur úr sjó Sósan: 3 / 4 dl tómatsósa 1 dl vatn 1 tsk basil 1 / 2 tsk grænmetiskraftur 1 / 4 tsk salt

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=