Gott og gagnlegt 1

24 – Heimilisfræði 5. bekkur Efni: 1 sneið skinka biti af papriku, tómat eða blaðselleri biti af lauk eða blaðlauk 1 egg 1 / 2 dl mjólk 1 / 8 tsk salt 1 / 8 tsk af öðru kryddi, til dæmis paprikudufti, hvítlauksdufti eða svörtum pipar 1 msk rifinn ostur Aðferð: 1. Kveikið á ofninum og stillið á 200 °C. 2. Skerið skinku í litla bita. 3. Skolið og skerið grænmetið smátt. 4. Penslið 2 lítil álform eða eldfast mót með matarolíu. 5. Setjið saxað grænmetið og skinku í botninn á forminu. 6. Brjótið eggið í skál, setjið mjólk og krydd útí og sláið saman með gaffli. Hellið í formin og stráið rifnum osti yfir. 7. Bakið í 15–20 mínútur. 8. Þegar eggjakakan er bökuð er henni hvolft á skreyttan disk. Eggjakaka í ofni Efni: 6 dl vatn biti af lauk­ biti af blað- og rauðlauk biti af blaðsellerí 1 meðalstór kartafla 1 rófusneið 1 gulrót 1 / 4 paprika 1 dl smátt saxað hvítkál 1 / 2 dl smátt brotið spagettí 1 / 2 kjúklingateningur 1 / 4 grænmetisteningur örlítill pipar eða annað krydd, þurrkuð eða ný steinselja til skrauts Aðferð: 1. Mælið vatn í pott og látið suðuna koma upp. 2. Hreinsið grænmetið, afhýðið og skolið undir köldu vatni. 3. Skerið grænmetið smátt og brjótið spagettíið í litla bita. 4. Setjið grænmetið, spagettíið og kryddið út í pottinn og látið krauma í 10 mínútur. Haustsúpa Gott er að bera þennan rétt fram með fersku grænmeti og brauði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=