Heimur í hendi - Geimurinn
Geimkannar sækja þekkinguna um sólkerfið Nær öll þekking á sólkerfinu, sólinni, reikstjörnum þess og tunglum hefur fengist með geimkönnum. Geimkannar eru vélmenni sem eru fjarstýrð frá jörðu. Þeim er skotið upp með eldflaugum og beint að fjarlægum reikistjörnum í sólkerfinu. Það er mikilvægt að þeir afli upplýsinga og þekkingar án þess að lífi fólks sé stofnað í hættu. Algengast er að koma þeim á braut um reikistjörnu sem þeim er ætlað að kanna. Þar verða þeir eins konar fylgitungl þeirra reikistjarna. Öðrum er ætlað að lenda á yfirborðinu til frekari vísindalegra tilrauna sem auka skilning okkar á þessum fjarlægu hnöttum. Flestir geimkannar hafa verið sendir til reikistjörnunnar Mars. Nokkrir á braut um Venus. Tveir til Merkúríusar. Sex hafa farið til Júpíter. Fjórir til Satúrnus og einn til Úranus og Neptúnus. Sá síðasti sem hélt í svo langt ferðalag er geimkanninn „Nýr sjóndeildarhringur“ (enska: New Hori- zon). Honum var skotið frá jörðu árið 2006 og komst á leiðarenda á dvergreikistjörnuna Plútó í júlí 2015. Það mun taka langan tíma að öðlast þekkingu á sólkerfinu með geimkönnum vegna þess að þeir geta einungis reynt að fá svör á fyrirfram ákveðnum spurningum. Reynslan sýnir að svörin kalla fram nýjar spurningar og það mun því taka mörg hundruð ár að afla svara við öllum spurningum um sólkerfið. 22
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=