Galdraskólinn

6 Hvern langaði svo sem til að verða lands- liðskona í fótbolta eða garðyrkjumeistari ef það stóð til boða að verða norn? Þess vegna sat Katja nú um borð í rútu á leið í Galdraskólann að Saurbæ Farþegarnir tíndust einn af öðrum úr rútunni og loksins sat Katja ein eftir Rútan ók lengi eftir holóttum vegi og stoppaði svo á stað þar sem nákvæmlega ekkert sérstakt virtist vera – Hei, þú, pjakkur! Þetta er hér! kallaði bílstjórinn Katja brölti niður úr rútunni og litaðist um Þetta hér reyndist vera afleggjari upp að litlu húsi Langt virtist síðan húsið hafði verið málað og það leit út fyrir að vera allt of lítið til þess að vera nokkurs konar skóli Þetta var bara gamall sveitabær Þarna voru meira að segja útihús og ónýtar vinnuvélar Hvað merkir afleggjari?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=