Galdraskólinn

41 Æ, af hverju kunni hún ekki að galdra? Einmitt núna hefði verið gagnlegt að kunna að galdra Katja braut heilann eins og hún gat þar sem hún stóð í kirkjudyrunum Hún þurfti bara að trufla hann nóg til þess að hann liti undan í smástund Hún horfði á altarisklæðið fyrir aftan Kolbein Það var rautt og appelsínugult Það gat varla verið mjög erfitt að láta það líta út eins og eld Hinir krakkarnir voru alltaf að láta hlutina líta út fyrir að vera eitthvað annað en þeir voru Gæti hún látið Kolbein halda að það væri kviknað í kirkjunni? Katja starði á klæðið og hugsaði um alla galdrameistarana sem höfðu gengið um sveitina á undan henni Hún hugsaði um kraftinn sem bjó í jörðinni og í henni sjálfri Hún hugsaði um hvað það var mikilvægt að bjarga Kolbeini frá sjálfum sér Hún einbeitti sér af öllum kröftum Hvernig ætlaði Katja að trufla Kolbein?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=